Anna Björk Árnadóttir og Sólveig R. Gunnarsdóttir, stofnendur Eventum Travel.
Anna Björk Árnadóttir og Sólveig R. Gunnarsdóttir, stofnendur Eventum Travel.

Eventum Travel er nýtt fyrirtæki sem sérhæfir sig í árshátíðarferðum erlendis, jafnan á stöðum sem ekki hafa verið í boði áður fyrir Íslendinga. Fyrirtækið var stofnað af Sólveigu R. Gunnarsdóttur og Önnu Björk Árnadóttur og byggist á samstarfi og þéttu tengslaneti við birgja hér heima og erlendis. Fyrirtækið mun sérhæfa sig í ferðum til Eystrasaltslandanna ásamt Skotlandi, Írlandi, Portúgal, Ítalíu, Króatíu og Slóvakíu.

„Við ætlum okkur að koma með ferskan og faglegan blæ inn á íslenska markaðinn með því að bjóða ógleymanlegar ferðir til staða sem jafnan hafa ekki verið í boði áður,“ segir Anna Björk í samtali við ViðskiptaMoggann.

Þær Sólveig og Anna Björk kynntust í FKA framtíð þegar þær sátu saman í stjórn félagsins, en FKA framtíð er deild fyrir ungar athafnakonur innan

...