Myndlistarmennirnir Aðalsteinn Stefánsson, Hjörtur Hjartarson og Þóroddur Bjarnason halda saman sýningu í Gallerí 16 við Vitastíg. Hún verður opnuð í dag, fimmtudaginn 22. ágúst, kl. 16. Listamennirnir þrír eru bekkjarbræður úr fjöltæknideild…
Eitt verka Hjartar.
Eitt verka Hjartar.

Myndlistarmennirnir Aðalsteinn Stefánsson, Hjörtur Hjartarson og Þóroddur Bjarnason halda saman sýningu í Gallerí 16 við Vitastíg. Hún verður opnuð í dag, fimmtudaginn 22. ágúst, kl. 16. Listamennirnir þrír eru bekkjarbræður úr fjöltæknideild Myndlista- og handíðaskóla Íslands en er þetta þriðja samsýning þeirra frá útskrift árið 1996. Á sýningunni, sem verður opin í eina viku, verða málverk og verk unnin með blandaðri tækni.