Vestmannaeyjar Stuðningsmenn ÍBV geta einnig stutt HBH í haust.
Vestmannaeyjar Stuðningsmenn ÍBV geta einnig stutt HBH í haust. — Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Handknattleiksbandalag Heimaeyjar er nýtt handknattleiksfélag í Vestmannaeyjum og mun leika í 1. deildinni á komandi leiktíð. Handknattleiksbandlag Heimaeyjar, eða HBH, er nýtt venslagfélag ÍBV. Í tilkynningu frá ÍBV segir að HBH sé gert til að halda betur utan um unglingaflokk ÍBV. Þá mun liðið vera í næstefstu deild Íslandsmótsins á næstu leiktíð til að veita leikmönnum betri umgjörð og betur undirbúa framtíðarleikmenn ÍBV.