Knattspyrnumaðurinn Raheem Sterling virðist vera á förum frá Chelsea. Sterling kom til Chelsea sumarið 2022 eftir að hafa verið afar sigursæll hjá Manchester City. Sterling hefur hins vegar valdið vonbrigðum hjá Chelsea en hann er ekki í náðinni hjá …
Lundúnir Raheem Sterling á að finna sér nýtt félag.
Lundúnir Raheem Sterling á að finna sér nýtt félag. — AFP/Kamil Krzaczynski

Knattspyrnumaðurinn Raheem Sterling virðist vera á förum frá Chelsea. Sterling kom til Chelsea sumarið 2022 eftir að hafa verið afar sigursæll hjá Manchester City. Sterling hefur hins vegar valdið vonbrigðum hjá Chelsea en hann er ekki í náðinni hjá Enzo Maresca, nýjum stjóra Chelsea, sem hefur ráðlagt honum að finna nýtt félag. Þá var treyjunúmer hans, 7, tekið af honum og mun nýi maðurinn Pedro Neto verða með númerið á bakinu á tímabilinu.