Meiddur Sigvaldi Björn Gunnarsson er fyrirliði norsku meistaranna.
Meiddur Sigvaldi Björn Gunnarsson er fyrirliði norsku meistaranna. — Morgunblaðið/Eggert

Sigvaldi Björn Guðjónsson, landsliðsmaður í handknattleik, er að glíma við meiðsli og hefur því ekki getað æft með Noregsmeisturum Kolstad, þar sem hann er fyrirliði, undanfarnar tvær vikur. Á handboltasíðunni Norsk Topphåndball kemur fram að Sigvaldi Björn sé meiddur á fæti. Gæti hann verið frá í tvær vikur til viðbótar. Fari svo missir hann af fyrsta leik Kolstad á nýju tímabili í norsku úrvalsdeildinni, gegn Runar Sandefjord þann 1. september.