Snekkjuslys Ítalskir kafarar sjást hér flytja eitt líkanna fimm sem fundust í gær til hafnar. Eitt lík var enn ófundið þegar leit var frestað í gærkvöldi.
Snekkjuslys Ítalskir kafarar sjást hér flytja eitt líkanna fimm sem fundust í gær til hafnar. Eitt lík var enn ófundið þegar leit var frestað í gærkvöldi. — AFP/Alberto Pizzoli

Kafarar ítölsku strandgæslunnar fundu í gær jarðneskar leifar fimm af þeim sex, sem enn var saknað eftir að munaðarsnekkjan Bayesian sökk undan ströndum Sikileyjar á mánudaginn. Tókst björgunarteymi að heimta fimmtán manns af skútunni úr helju en sjö eru taldir af eftir slysið.

Þau sem talin eru af eru feðginin Mike Lynch, kaupsýslumaður og hátæknifrumkvöðull, og Hannah Lynch, 18 ára; hjónin Jonathan Bloomer, stjórnarmaður í bankanum Morgan Stanley, og Judy Bloomer; og hjónin Chris Morvillo lögmaður og Neda Morvillo skartgripahönnuður. Þá er einn úr áhöfn látinn, skipskokkurinn Recaldo Thomas, en lík hans fannst á mánudaginn.

Ekki var í gær sagt af hverjum líkin voru sem fundust um borð í lúxusfleyinu, en gert var hlé á leitinni að sjöunda líkinu um kvöldmatarleytið í gær. Var þá búið að flytja lík fjögurra til hafnar. Snekkjan hvílir á hlið á um 50 metra

...