50 ára Ingibjörg ólst upp á Hvammstanga en býr í Kópavogi. Hún er hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands og starfar sem forstöðuhjúkrunarfræðingur á dag- og legudeildum skurðlækningasviðs Landspítala. Áhugamálin eru útivist og ferðalög og að eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum.


Fjölskylda Ingibjörg er gift Sigurði H Sturlaugssyni, f. 1974, tölvunarfræðingi hjá Stjórnarráðinu. Börn þeirra eru Jóhannes Laxdal, f. 1997, maki Fjóla Stefánsdóttir, f. 1997, dóttir þeirra er Stella Björg, f. 2022; Þórný Kristín Laxdal, f. 2004, og Guðmundur Laxdal, f. 2010. Foreldrar Ingibjargar eru hjónin Guðmundur Gíslason, f. 1944, og Margrét Jóhannesdóttir, f. 1945, búsett á Hvammstanga.