Markaskorari Zehnder leikur sem vinstri skytta eða leikstjórnandi.
Markaskorari Zehnder leikur sem vinstri skytta eða leikstjórnandi. — AFP/Odd Andersen

Þýska handknattleiksfélagið Magdeburg hefur keypt Svisslendinginn Manuel Zehnder frá Erlangen. Zehnder varð markakóngur þýsku 1. deildarinnar á láni hjá Eisenach á síðasta tímabili og er ætlað að fylla skarð Svíans Felix Claars sem verður lengi frá vegna meiðsla. Landsliðsmennirnir Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson leika með Þýskalandsmeisturum Magdeburg. Ómar Ingi var þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar á síðasta tímabili.