„Elsku Sjonni Brink minn og okkar hefði orðið fimmtugur ef hann hefði lifað, núna 29. ágúst. Þannig að við ætlum að halda upp á þetta og við ætlum að gera það með því að spila frábæru tónlistina hans,“ segir Þórunn Clausen, sem mætti í Skemmtilegri leiðina heim á K100. Hún mun fagna eiginmanni sínum heitnum með tónleikunum í Bæjarbíói 4. og 5. september, en hann varð bráðkvaddur langt fyrir aldur fram 2011. „Fyrir bráðum 14 árum í janúar. Það er eins og það hafi verið ýtt á pásutakkann og eitthvað hliðarlíf hófst,“ sagði Þórunn. Viðtalið má finna í heild á K100.is.