40 ára Andri ólst upp í Breiðholti og síðar á Selfossi, en býr núna í Hafnarfirði. Hann er viðskiptafræðinemi við Háskólann á Akureyri og vinnur sem ráðgjafi hjá dk hugbúnaði. Andri hefur verið knattspyrnudómari hjá KSÍ síðan 2002 og alþjóðlegur aðstoðardómari hjá FIFA frá 2017. Áhugamálin eru golf og að vera með fjölskyldunni.


Fjölskylda Synir Andra eru Vigfús Birgir, f. 2014, og Róbert Elvar, f. 2016. Foreldrar Andra eru hjónin Vigfús Þór Gunnarsson, f. 1958, og Valgerður Helga Benediktsdóttir, f. 1958, búsett í Hafnarfirði.