66°Norður, Brimnes-jakki, 39.900 kr.
66°Norður, Brimnes-jakki, 39.900 kr.

Sumarið getur haft þau áhrif að fólk detti út úr æfingarútínunni en með haustinu er góð hugmynd að koma sér aftur af stað. Það er óþarfi að eiga mikið af íþróttafatnaði, því mælt er með því að þvo föt fljótlega eftir að æfingu lýkur, og eru þau fljót að þorna. Þannig geturðu átt færri flíkur og vandaðri. Reyndu að festast ekki einungis í svörtum íþróttafötum og skoðaðu bláa, gráa og græna litatóna. Fyrir þá sem stunda útihlaup af miklum krafti er mikilvægt að muna eftir hlýjum fatnaði eins og hlaupavesti og hálskraga þegar kólna fer í veðri. Heitir tímar verða líka vinsælli með haustinu og gott að flýja þangað inn úr kuldanum. Þá má ekki gleyma jógahandklæðinu. Gangi þér vel!