Á sýningunni Ómælislaug eða Infinity Pool, sem verður opnuð í dag klukkan 17 í Kling & Bang í Marshallhúsinu, sýna listamennirnir Arnar Ásgeirson og Kristín Karól­ína Helgadóttir ný verk sem voru sérstaklega unnin fyrir sýninguna

Á sýningunni Ómælislaug eða Infinity Pool, sem verður opnuð í dag klukkan 17 í Kling & Bang í Marshallhúsinu, sýna listamennirnir Arnar Ásgeirson og Kristín Karól­ína Helgadóttir ný verk sem voru sérstaklega unnin fyrir sýninguna. Segir í tilkynningu að á sýningunni tefli þau fram verkum sem bendi með kímnum hætti á það hvernig hversdagsleg kerfi, sem við séum þátttakendur í, móti og stýri hegðun okkar og gildismati. Sýningin stendur til sunnudagsins 29. september.