Þóra Einarsdóttir fæddist á Akranesi 24. júlí 1946. Hún varð bráðkvödd við heimili sitt 11. ágúst 2024.

Þóra var elst fjögurra barna hjónanna Sigríðar Unnar Bjarnadóttur frá Borgarnesi, f. 1925, og Einars Árnasonar málarameistara frá Akranesi, f. 1921. Systkini Þóru eru Jóhanna, f. 1949, Sigurður Már, f. 1955, og Flosi, f. 1961.

Hún giftist Jóni Ármanni Arasyni, f. 1946, hinn 18. nóvember 1967. Jón er sonur hjónanna Ólafar Sigvaldadóttur og Ara Guðmundssonar vegaverkstjóra í Borgarnesi. Börn Þóru og Jóns eru: 1) Einar tónlistarmaður, f. 1970, hann er kvæntur Halldóru Jónsdóttur geðlækni. Þeirra börn eru Ásgrímur Ari, Jón Arnar, Unnur Vala og Baldur Hrafn. 2) Sigríður Unnur viðskiptafræðingur, f. 1976, hún er gift Ágústi Þór Jóhannssyni handknattleiksþjálfara. Þeirra börn eru Ásdís Þóra, Lilja og Jóhann. Þóra og Jón Ármann slitu

...