Hættur Jonathan Glenn tók við Keflavík fyrir tímabilið 2023.
Hættur Jonathan Glenn tók við Keflavík fyrir tímabilið 2023. — Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Jonathan Glenn hefur látið af störfum sem þjálfari kvennaliðs Keflavíkur í knattspyrnu. Þetta tilkynnti knattspyrnudeild félagsins á samfélagsmiðlum sínum í gær en hann tók við liðinu fyrir tímabilið 2023 og hafnaði liðið í 8. sæti Bestu deildarinnar á síðustu leiktíð. Keflavík hefur ekki gengið vel í deildinni í ár og situr sem stendur í tíunda og neðsta sætinu með níu stig, líkt og Fylkir, eftir fyrstu 17 umferðirnar, þremur stigum frá öruggu sæti.