Það er komið algert blakæði í Andabæ. Andrés og Hábeinn spila saman fyrir lið Jóakims en lenda í ýmsum hremmingum á eyðieyju.

Edison eyðir sumrinu á sveitabýlinu hjá Ömmu, rétt eins og Georg gerði þegar hann var ungur. Þar kemur hann sér í klandur en er fljótur að snúa því við.

Jóakim og félagar fara til Kylfulands að keppa í golfi fyrir hönd Kalisóta, þeir missa út hvern leikmanninn á fætum öðrum en þá koma varaskeifurnar sér vel.

Jóhann biður Jóakim um árlega frídaginn sinn en gleymir að taka fram hvert hann vilji fara í frí.