Svanborg Rannveig Briem (Labba) fæddist á Siglufirði 1. júlí 1944. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 22. júní 2024.

Foreldrar hennar voru Zophanía Guðmunda Einarsdóttir Briem, f. 28.1. 1925, d. 13.5. 2020, og Gunnlaugur Jón Halldór Briem, f. 27.9. 1917, d. 24.12. 2002.

Bræður Svanborgar voru Halldór Gísli Briem, f. 15.9. 1949, d. 7.11. 2019 í Grikklandi, eiginkona hans var Líða Briem, sonur þeirra er Magnús Dimitri, og Einar Jón Briem, f. 6.8. 1958, eiginkona hans er Anna Jóna Jóhannsdóttir, börn þeirra eru Jóhann Orri, Emelía Góa og Gunnlaugur Jón.

Svanborg giftist Braga Ólafssyni, f. 13.8. 1938, þann 22.12. 1967. Börn þeirra eru: 1) Bryndís, f. 1965, gift Einari Einarssyni. Börn þeirra eru a) Arnrún Lea, sambýlismaður hennar er Bjartmar Jón Ingjaldsson, dóttir þeirra er

...