Morð Fjórða sería af Only Murders in the Building, sem er sýnd á streymisveitunni Disney+, verður frumsýnd hinn 27. ágúst. Steve Martin, Martin Short og Selena Gomez eru sem fyrr í aðalhlutverkum sem undarlega þríeykið sem heldur úti vinsælu…
Kynlega þríeykið Martin Short, Selena Gomez og Steve Martin snýr aftur á Disney+.
Kynlega þríeykið Martin Short, Selena Gomez og Steve Martin snýr aftur á Disney+.

Morð Fjórða sería af Only Murders in the Building, sem er sýnd á streymisveitunni Disney+, verður frumsýnd hinn 27. ágúst. Steve Martin, Martin Short og Selena Gomez eru sem fyrr í aðalhlutverkum sem undarlega þríeykið sem heldur úti vinsælu hlaðvarpi um sakamál sem þau rannsaka samtímis. Að þessu sinni leita þau svara við því hver myrti Sazz Pataki, vin og staðgengil Charles, og hvort Charles hafi verið fórnarlambið. Til að rannsaka morðið fer þríeykið til Los Angeles þar sem margir nýir karakterar verða kynntir til leiks.