Guðjón Guðmundsson fæddist 15. febrúar 1954 á Flateyri. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða 14. ágúst 2024.

Foreldrar hans eru Guðmundur Valgeir Jóhannesson skipstjóri frá Flateyri, f. 17. desember 1905, d. 9. maí 2000, og Hallfríður Guðbjartsdóttir húsmóðir frá Flateyri, f. 27. nóvember 1916, d. 9. nóvember 1994.

Guðjón var yngstur sex systkina, hin eru: Jóhannes Valgeir, f. 1941, d. 1942, Jóhanna Valgerður, f. 1944, d. 1997, Gunnar Kristján, f. 1946, d. 2008, Magnús Hringur, f. 1947, og Eiríkur Guðbjartur, f. 1950.

Guðjón kvæntist 4. október 1980 Bjarnheiði J. Ívarsdóttur hjúkrunarfræðingi, f. 4. apríl 1958. Foreldrar hennar eru Ívar Bjarnason, f. 1925, d. 2014, og Helga M. Sigurðardóttir, f. 1933, d. 2017. Bjarnheiður ólst upp í Reykjavík. Dætur þeirra eru: 1) Helga Rún, f. 1. júlí

...