Gunnar Þorvaldsson fæddist 23. apríl 1947. Hann lést 13. júlí 2024.

Útför hans fór fram 24. júlí 2024.

Við Gunnar kynntumst fyrir allmörgum árum í Kaupmannahöfn. Það vildi svo til að ég leigði lítið herbergi hjá Frú Ólafsson, en við hliðina bjó Gunnar ásamt foreldrum sínum. Þetta var í Lille Strandstræde. Gunni var mikill áhugamaður þar um seglbátasiglingar og bauð mér stundum með þegar vinna mín leyfði.

Þetta var skemmtilegt sumar, við 12-13 ára.

Nú svo liðu árin og aftur kynntumst við sem bekkjarbræður í Menntaskólanum á Akureyri. Flug og flugvélar áttu hug hans allan. Fór hann með mig í nokkrar flugferðir, allar ævintýralegar, og munu þær seint gleymast. Gunnar var alltaf gætinn en samt stríðinn og skemmtilegur.

...