— AFP

Streymisveitan Netflix hefur tilkynnt að framleiðsla á heimildarþáttum um líf Victoriu Beckham séu í vinnslu.

Í þessum þáttum verður fylgst með lífi Victoriu og leið hennar á toppinn.

Þar eigum við að fá að skyggnast inn í tísku- og snyrtivöruheiminn hennar og svo auðvitað fjölskyldunnar.

Netflix lofar okkur því að við munum fá að sjá myndefni sem aldrei hefur sést áður svo við megum eflaust búast við fjölskyldumyndböndum og fleiru í þeim dúr.

David og Victoria Beckham eiga fjögur börn saman og þættirnir taka einnig á fjölskyldulífinu hjá þessari frægustu fjölskyldu í heimi, í gegnum augu Victoriu.

Fylgstu með Stjörnufréttum Evu Ruzu á K100.