Bíó Paradís MaXXXine ★★★·· Leikstjórn: Ti West. Handrit: Ti West. Aðalleikarar: Mia Goth, Elizabeth Debicki, Giancarlo Esposito, Moses Sumney, Halsey, Kevin Bacon, Simon Prast og Lily Collins. Bandaríkin, Bretland og Holland. 2024. 104 mín.
Stjarna Mia Goth leikur klámstjörnuna Maxine en rýni þykir hún fullkomin í hryllingsmyndahlutverkið.
Stjarna Mia Goth leikur klámstjörnuna Maxine en rýni þykir hún fullkomin í hryllingsmyndahlutverkið.

Kvikmyndir

Jóna Gréta

Hilmarsdóttir

MaXXXine eftir leikstjórann Ti West er síðasta myndin í X-þríleiknum, á eftir X (2022) og Perlu (2022). Perla gerist árið 1918 og segir frá ungri konu, Perlu (Mia Goth), sem dreymir um að komast burt frá ástlausu heimili foreldra sinna og verða dansari. Áhorfendur sjá hins vegar fljótt að Perla er stórhættuleg kona. Kvikmyndin X er í raun eins konar framhaldsmynd af Perlu jafnvel þótt X hafi verið framleidd áður. X gerist sextíu árum síðar, eða á 8. áratugnum, á sama sveitabæ, en hin stórhættulega Perla býr ennþá þar. Maxine (Goth) ætlar að taka upp klámmynd á bænum en Perla er ekki sátt við það og því fylgja afleiðingar.

X er dæmi

...