Hin unga og geysivinsæla Billie Eilish á framtíðina fyrir sér.
Hin unga og geysivinsæla Billie Eilish á framtíðina fyrir sér. — AFP

Tónlist Hin 22 ára Billie Eilish situr efst á Spotify fyrir mánaðarlega hlustun með yfir 100 milljónir hlustenda. Hún er þriðji, og yngsti, tónlistarmaðurinn sem nær þessum áfanga á eftir Taylor Swift og The Weeknd. Í færslu á Instagram þakkar Eilish aðdáendum sínum: „Ég elska ykkur öll svo mikið, þetta er klikkað.“ Þriðja plata Eilish, Hit Me Hard and Soft, sem hún gerði ásamt bróður sínum Finneas, kom út í maí.