Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, er genginn til liðs við sádiarabíska félagið Al-Orobah. Jóhann kemur til Al-Orobah frá Burnley á Englandi en hann endursamdi við enska félagið fyrr í sumar og lék aðeins einn leik á nýhöfnu…
Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, er genginn til liðs við sádiarabíska félagið Al-Orobah.
Jóhann kemur til Al-Orobah frá Burnley á Englandi en hann endursamdi við enska félagið fyrr í sumar og lék aðeins einn leik á nýhöfnu tímabili með liðinu, þar sem hann skoraði í 5:0-sigri á Cardiff.
Landsliðsmaðurinn skrifaði undir eins árs samning við Al-Orobah sem er nýliði í efstu deild í Sádi-Arabíu.