Körfuknattleiksþjálfarinn Benedikt Guðmundsson tók við karlaliði Tindastóls eftir síðustu leiktíð og er á leiðinni í sitt fyrsta tímabil á Sauðárkróki. Mun hann þjálfa Tindastólsliðið meðfram því að þjálfa kvennalandslið Íslands. Benedikt kemur til Tindastóls frá Njarðvík, þar sem hann þjálfaði karlaliðið í þrjú ár. „Það er ákveðin stemning að búa í Skagafirði og þjálfa Tindastól,“ sagði Benedikt í samtali við Morgunblaðið. » 49