Anna Sigurlaug Ívarsdóttir fæddist á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki 20. júní 1955. Hún lést í faðmi fjölskyldunnar á Landspítalanum við Hringbraut 14. ágúst 2024, eftir stutt veikindi.

Anna Sigurlaug var dóttir hjónanna Kristínar Sigþrúðar Sigurjónsdóttur, f. 13.8. 1915, d. 16.8. 2008, og Ívars Antonssonar, f. 27.6. 1917, d. 14.2. 2002.

Eftirlifandi systir Önnu Sigurlaugar er Sigrún Sigurjóna, f. 17.9. 1948.

Hinn 24. október 1981 giftist Anna Sigurlaug eftirlifandi eiginmanni sínum, Erni Ingólfssyni vélstjóra frá Innri-Kleif í Breiðdal, f. 24.5. 1953.

Fyrir átti Anna Auði Björnsdóttur, f. 17.5. 1974, gift Stefáni Magnússyni, f. 8.5. 1971, börn þeirra Anna Thelma, maki Sigvaldi Eggertsson, Magnús Aðils og Lovísa

...