Ef skoðun mín á skemmtanahaldi í stigaganginum gengur í berhögg við ályktanir húsfélagsins stangast hún á við þær. Enn getur þó allt endað friðsamlega. En fjandinn verður laus ef ég geng í berhögg við húsfélagið: óhlýðnast, geri þvert gegn vilja…

Ef skoðun mín á skemmtanahaldi í stigaganginum gengur í berhögg við ályktanir húsfélagsins stangast hún á við þær. Enn getur þó allt endað friðsamlega. En fjandinn verður laus ef ég geng í berhögg við húsfélagið: óhlýðnast, geri þvert gegn vilja þess – og sekkjapípuplöturnar mínar halda fyrir því vöku fram eftir nóttum.