Það bar helst til tíðinda í lok vikunnar að það fór að gjósa. Gunnar J. Straumland kastaði fram: Eftir nokkurt moð og más og marga kenninguna rifnaði eins og rennilás rauf í jarðskorpuna. Þá Helgi Zimsen: Iður jarðar æla af krafti upp úr sprungu, henda þar frá heljarkjafti hrauni þungu
Pétur Blöndal
p.blondal@gmail.com
Það bar helst til tíðinda í lok vikunnar að það fór að gjósa. Gunnar J. Straumland kastaði fram:
Eftir nokkurt moð og más
og marga kenninguna
rifnaði eins og rennilás
rauf í jarðskorpuna.
Þá Helgi Zimsen:
Iður jarðar æla af krafti
upp úr sprungu,
henda þar frá heljarkjafti
hrauni þungu.
Hafsteinn Reykjalín Jóhannesson yrkir af sama tilefni:
Logar upp úr landi rísa,
leggur reyk í suðurátt.
Skýin
...