Konráð Ingi Jónsson fæddist 14. janúar 1956. Hann lést 10. ágúst 2023.

Útför Konráðs fór fram 23. ágúst 2023.

Fyrir réttu ári var Konráð Ingi Jónsson eða Konni í Litróf eins og hann var jafnan kallaður borinn til grafar eftir nokkra ára baráttu við sjúkdóm sem að lokum hafði betur.

Við hjónin höfðum ekki tækifæri til að fylgja honum og því er hér síðbúinn kveðja.

Konni var lausnamiðaðasti og jákvæðasti maður sem ég hef hitt. Ég kynntist honum þegar ég nýútskrifaður hóf störf hjá GBB auglýsingaþjónustunni árið 1986, Konni var með Litróf sem þá var skeytingafyrirtæki á hæðinni fyrir neðan okkur. Filmuskeytingar hurfu með tölvutækninni en gengu út á að gera filmu fyrir hvern lit fyrir sig af prentlitunum fjórum í réttu rastaneti og eftir filmunum voru

...