Petra Benedikta Kristjánsdóttir kennari fæddist 15. mars 1952 í Leyningi í Saurbæjarhreppi. Hún lést 14. ágúst 2024 á lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri.

Hún var dóttir hjónanna Sigríðar Sveinsdóttir og Kristjáns Hermannssonar í Leyningi. Systkini Petru eru: Áslaug, f. 5. maí 1950, Haukur, f. 17. apríl 1953, d. 1. október 2010, Erlingur Örn, f. 31. mars 1957, Grétar, f. 2. apríl 1959, d. 2. apríl 1959, Indriði, f. 2. febrúar 1963, d. 15. apríl 1992, Vilhjálmur Geir, f. 21. janúar 1966.

Petra giftist árið 1976 Kristjáni Ásgeiri Þorvaldssyni, f. 1951. Bjuggu þau á Akureyri og Bergen í Noregi. Þau skildu árið 1989.

Börn Petru og Kristjáns eru: Kolbrún Magnea, f. 1. júlí 1978, maki Birgir Örn Steinarsson, f. 1976, börn þeirra eru Lúkas Þorri og Kolbrá

...