— Ljósmynd/TikTok

Þórdís Björk, eða Dísa eins og hún er kölluð, fór á kostum á TikTok um helgina þar sem hún tjáði sig um upplifun sína af því að búa í Vesturbænum á meðan Reykjavíkurmaraþonið stóð yfir en yfir 50 þúsund hafa horft á myndbandið. Hún ræddi á léttu nótunum við Kristínu Sif, Þór Bæring og Bolla Má í Ísland vaknar um ofurpeppara helgarinnar, sem fengu hana til að íhuga að flýja heimili sitt eftir að þeir höfðu spilað lagið „Í larí lei“ með Siggu Beinteins stanslaust í nokkrar klukkustundir fyrir utan húsið hennar.

Viðtalið má finna á K100.is.