— Ljósmynd/Halldór G. Hálfdánsson

Úrhellisrigning var á Tröllaskaga frá fimmtudegi og fram á laugardag. Grjót- og aurskriður féllu og ákvað aðgerðastjórn á Norðurlandi að loka Siglufjarðarvegi síðdegis á föstudaginn vegna vatnavaxta og skriðufalla.

Mikið er um sprungur í veginum og hætta á grjóthruni. Notast var við hjólaskóflu í gær til þess að hreinsa veginn og laga sprungurnar. Vegurinn er enn lokaður og mun að öllum líkindum vera það fram á morgun. Er vegfarendum bent á að fara Lágheiðina eða yfir Öxnadalsheiði. » 4