Ný Fokk ofbeldi-húfa leit dagsins ljós um helgina þegar tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN, bar hana í viðtali frá Arnarhóli á Menningarnótt. Hin árlega FO-herferð UN Women á Íslandi fer formlega af stað föstudaginn 30. ágúst en um er að ræða stærsta árlega söfnunarátak samtakanna.
Í gegnum átakið, sem hófst 2015, hafa safnast meira en 100 milljónir króna til verkefna UN Women sem hafa það að markmiði að uppræta kynbundið ofbeldi. Í ár mun ágóðinn renna til verkefna UN Women í Súdan.