Hættur Alfreð skoraði 18 mörk í 73 A-landsleikjum fyrir Íslands hönd.
Hættur Alfreð skoraði 18 mörk í 73 A-landsleikjum fyrir Íslands hönd. — Morgunblaðið/Eggerton

Knattspyrnumaðurinn Alfreð Finnbogason hefur lagt landsliðsskóna á hilluna. Alfreð, sem er 35 ára gamall framherji og uppalinn hjá Breiðabliki, leikur með Eupen í Belgíu. Hann lék 73 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og skoraði í þeim 18 mörk. Varð hann fyrsti Íslendingurinn til að skora á lokamóti HM er hann jafnaði gegn Argentínu í 1:1-jafnteflinu á mótinu í Rússlandi árið 2018. Hann lék einnig á lokamóti EM í Frakklandi tveimur árum áður.