Ítalía Hjörtur Hermannsson fer úr einu ítölsku félagi og í annað.
Ítalía Hjörtur Hermannsson fer úr einu ítölsku félagi og í annað. — Ljósmynd/Szilvia Micheller

Hjörtur Hermannsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er genginn til liðs ítalska félagið Carrarese frá Pisa. Bæði lið leika í B-deildinni á Ítalíu. Skrifaði hann undir eins árs samning við Carrarese, sem er nýliði í B-deildinni. Hjörtur lék með Pisa frá árinu 2021 en var í smærra hlutverki en áður á síðasta tímabili. Hann er 29 ára gamall og hefur leikið 27 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og skorað í þeim eitt mark.