Danska körfuknattleikskonan Ena Viso hefur endursamið við Njarðvík og mun leika með liðinu á komandi tímabili. Viso skoraði 12,8 stig, tók sjö fráköst og gaf 3,8 stoðsendingar að meðaltali í leik á síðustu leiktíð og átti sinn þátt í að Njarðvík fór …
Körfubolti Sú danska Ena Viso tekur slaginn með Njarðvík áfram.
Körfubolti Sú danska Ena Viso tekur slaginn með Njarðvík áfram. — Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Danska körfuknattleikskonan Ena Viso hefur endursamið við Njarðvík og mun leika með liðinu á komandi tímabili. Viso skoraði 12,8 stig, tók sjö fráköst og gaf 3,8 stoðsendingar að meðaltali í leik á síðustu leiktíð og átti sinn þátt í að Njarðvík fór alla leið í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins á síðasta tímabili. Eru spennandi tímar fram undan hjá Njarðvík sem leikur loks í nýju húsi á komandi leiktíð.