Hetja Dani Olmo fer afar vel af stað með Barcelona.
Hetja Dani Olmo fer afar vel af stað með Barcelona. — AFP/Manuel Quintero

Evrópumeistarinn Dani Olmo var hetjan í frumraun sinni með Barcelona í 1. deild spænska fótboltans í gærkvöldi. Barcelona vann Rayo Vallecano, 2:1, á útivelli en Olmo kom inn á í seinni hálfleik og skoraði sigurmarkið á 82. mínútu. Unai Lopez kom Rayo Vallecano yfir snemma í leiknum en Pedri jafnaði metin á 60. mínútu. Dani Olmo sló í gegn með Spáni á Evrópumótinu í Þýskalandi í sumar og var í kjölfarið keyptur til Barcelona.