Mikel Merino
Mikel Merino

Spænski knattspyrnumaðurinn Mikel Merino er genginn til liðs við Arsenal frá Real Sociedad fyrir 31,6 milljónir punda. Merino, sem er 28 ára gamall miðjumaður, skrifar undir fjögurra ára samning hjá enska félaginu en hann varð Evrópumeistari með Spáni fyrr í sumar. Skoraði hann meðal annars sigurmarkið eftir framlengdan leik gegn heimamönnum í Þýskalandi í átta liða úrslitum. Arsenal hefur unnið fyrstu tvo leiki sína í ensku úrvalsdeildinni hingað til á tímabilinu.