Brot­ist var inn í höfuðstöðvar Heklu við Lauga­veg 174 og sex bif­reiðum stolið. Bif­reiðarn­ar eru bæði í eigu fyr­ir­tæk­is­ins og viðskipta­vina þess.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.

Þar seg­ir að um sé að ræða tvær bif­reiðar af gerðinni Volkswagen, þrjár Skoda-bif­reiðar og eina Audi-bif­reið. All­ir bíl­arn­ir voru hjá fyr­ir­tæk­inu til viðgerða og viðhalds.

„Eig­end­um um­ræddra bif­reiða hef­ur verið til­kynnt um þjófnaðinn sem náðist á ör­ygg­is­mynda­véla­kerfi fyr­ir­tæk­is­ins. Lög­regl­an, í sam­starfi við starfs­menn Heklu, vinn­ur nú að end­ur­heimt bif­reiðanna,“ seg­ir í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.