Svo mælir Íslensk orðabók að fleirtalan af héraðhéruð, en héröð merkir hún gamalt. Orðið beygist þá áfram um héruð, frá héruðum til héraða

Svo mælir Íslensk orðabók að fleirtalan af héraðhéruð, en héröð merkir hún gamalt. Orðið beygist þá áfram um héruð, frá héruðum til héraða. Þá beygingu geymir Beygingarlýsing líka og hefur hana fremst – en svo heldur frjálslyndið innreið sína: héröð, um héröð, frá héröðum. Eignarfallið samt til héraða.