Þórdís Erla Zoëga
Þórdís Erla Zoëga

Norræna listamessan CHART fer fram í Kaupmannahöfn um helgina. Eins og áður hefur komið fram á síðum blaðsins kynnir galleríið i8 tólf listamenn á messunni en alls taka þrjú íslensk gallerí þátt í henni í ár. Hin tvö eru BERG Contemporary og Þula gallerí. Á vegum BERG Contemporary sýna myndlistarmennirnir Þórdís Erla Zoëga og John Zurier. Þula gallerí sýnir verk eftir tvo listamenn, þau Áslaugu Írisi Katrínu Friðjónsdóttur og Davíð Örn Halldórsson. Þess má einnig geta að Margrét Bjarnadóttir listakona sýnir sviðsverkið PEOPLE PLEASE á Kóngsins nýjatorgi á föstudag og laugardag.