Þorlákshöfn Marreon Jackson mun leika með Þórsurum á tímabilinu.
Þorlákshöfn Marreon Jackson mun leika með Þórsurum á tímabilinu. — AFP/Ethan Miller

Bandaríski körfuknattleiksmaðurinn Marreon Jackson er genginn til liðs við Þór í Þorlákshöfn. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum en Jackson, sem er 25 ára gamall, lék síðast með Lavrio í Grikklandi. Hann hefur einnig leikið í Tyrklandi, Rúmeníu og Eistlandi á atvinnumannaferlinum. Þórsarar höfnuðu í fjórða sæti úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð og féllu úr leik í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins gegn Njarðvík.