Banaslys Banaslysið varð í íshelli á Breiðamerkurjökli á sunnudag þegar ísfarg hrundi yfir tvo bandaríska ferðamenn. Myndin er úr safni.
Banaslys Banaslysið varð í íshelli á Breiðamerkurjökli á sunnudag þegar ísfarg hrundi yfir tvo bandaríska ferðamenn. Myndin er úr safni. — Morgunblaðið/RAX

Félag fjallaleiðsögumanna á Íslandi hefur vikið ritara stjórnar félagsins, Mike Reid, úr stjórninni.

Er þetta gert í kjölfar banaslyssins sem varð á Breiðamerkurjökli á sunnudag.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef félagsins. Hún er svohljóðandi:

„Í ljósi atburða síðastliðinn sunnudag var haldinn stjórnarfundur mánudaginn 26. ágúst kl. 12.00. Sú ákvörðun var tekin að ritara stjórnar AIMG, Mike Reid, hefur verið vikið úr stjórn ásamt störfum sínum sem leiðbeinandi hjá félaginu.“

Mike Reid er stofnandi fyrirtækisins Ice Pic Journeys.

Par frá Bandaríkjunum varð undir ísfargi sem hrundi úr íshelli á Breiðamerkurjökli á sunnudag. Karlmaðurinn var úrskurðaður látinn á

...