30 ára Bjartur er Reykvíkingur, ólst upp í Grafarvogi en býr í dag í Laugardalnum. Hann er menntaður kvikmyndagerðarmaður frá Prag og starfar aðallega sem klippari. Fyrsta bíómynd hans sem aðalklippari heitir Ljósvíkingar og verður frumsýnd eftir helgi.


Fjölskylda Systkini Bjarts eru Andri Ómarsson, f. 1985, og Tinna Vibeka Signýjardóttir, f. 1989. Foreldrar Bjarts eru hjónin Sigurður Reynisson, f. 1955, og Signý Guðbjartsdóttir, f. 1966, búsett í Mosfellsbæ.