Hákon Rafn Valdimarsson var hetja Brentford þegar liðið hafði betur gegn Colchester á útivelli í 2. umferð enska deildabikarsins í knattspyrnu á miðvikudaginn. Þetta var fyrsti keppnisleikur Hákons fyrir Brentford, en hann varði vítaspyrnu á 82. mínútu og tryggði liðinu sínu dýrmætan 1:0-sigur. Hann var útnefndur maður leiksins í leikslok, en Hákon gekk til liðs við enska félagið frá Elfsborg í Svíþjóð í janúar á þessu ári.