Kristján Ragnarsson fæddist á Eskifirði 25. nóvember 1948. Hann lést 20. ágúst 2024.

Foreldrar hans voru Ragnar Sigurmundsson vélstjóri, f. 26.8. 1916, d. 4.10. 2007, og Sigríður Rósa Kristinsdóttir f. 10.8. 1923, d. 17.11. 2017.

Kristján var þriðji í röðinni af átta systkinum, hin eru Hafdís Þóra, Sigrún Ragna, Kristinn Jóhannes, Guðný Hallgerður, Guðrún, látin, Sigurmundur Víðir, látinn, og Áslaug.

Eiginkona Kristjáns er Katrín Guðmundsdóttir, f. 21.8. 1948 á Ísafirði, foreldrar hennar voru Guðmundur Elías Guðmundsson, f. 16.5. 1917, d. 15.6. 1986, og Lilja Halldórsdóttir, f. 4.6. 1919, d. 13.2. 2005.

Börn Stjána og Kötu: eru 1) Guðmundur Ragnar, f. 13. janúar 1974, maki Halla Hjördís Eyjólfsdóttir Kolbeins, börn hennar Alexander, Viktor

...