Markahæstur Jón Bjarni Ólafsson skoraði 9 mörk gegn Valsmönnum.
Markahæstur Jón Bjarni Ólafsson skoraði 9 mörk gegn Valsmönnum. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Íslandsmeistarar FH höfðu betur gegn bikarmeisturum Vals, 30:28, í Meistarakeppni karla í handknattleik í Kaplakrika í Hafnarfirði á miðvikudaginn. Jafnræði var með liðunum allan leikinn og var staðan 15:15 í hálfleik. Hafnfirðingar voru hins vega sterkari á lokamínútunum og fögnuðu naumum sigri. Jón Bjarni Ólafsson var markahæstur FH-inga með níu mörk. Keppni í úrvalsdeildinni hefst á miðvikudaginn með leik Vals og ÍBV.