Prent Eitt verkanna eftir Lohmann.
Prent Eitt verkanna eftir Lohmann.

Þýski listamaðurinn og prentarinn Linus Lohmann opnar nýja sýningu á vesturvegg Skaftfells Bistrós á Seyðisfirði í dag, föstudag, kl. 17. Lohmann, sem fæddur er 1982, vinnur með teikningar, prentgerð og skúlptúra. „Hann notar fjölbreyttar aðferðir við vinnslu mynda og hluta þar sem hann kannar skynjun efnis í endurgerðum birtingarmyndum,“ segir í viðburðarkynningu.