Hermann Nökkvi Gunnarsson
hng@mbl.is
Ráðstefna í tilefni hundrað ára afmælis Veðurstofu Íslands kostaði tæplega 36 milljónir króna. Var hún haldin árið 2022 sökum heimsfaraldurs kórónuveiru, en Veðurstofan varð hundrað ára árið 2020.
Þetta kemur fram í skriflegu svari frá Veðurstofunni við fyrirspurn blaðsins.
„Um var að ræða ráðstefnu sem upphaflega átti að vera einn af nokkrum viðburðum á 100 ára afmælisári Veðurstofu Íslands 2020. Öllum viðburðum var aflýst sökum heimsfaraldurs kórónuveiru,“ segir í svari Veðurstofunnar. Útlagður kostnaður vegna ráðstefnunnar var 35,9 milljónir krónur. Þar af voru um 60% fjármögnuð með ráðstefnugjöldum, eða um 21,7 milljónir króna.
Veðurstofan segir að ráðstefnuhaldið sjálft, salir, skráning, umsýsla og veitingar hafi kostað 32,3 milljónir króna. Þá nam kostnaður vegna gestafyrirlesara 3,6 milljónum króna. Þar á
...