— Morgunblaðið/Eggert

Varnaræfingin Norður-Víkingur hófst í vikunni og stendur til 3. september. Æfingin er haldin á grundvelli tvíhliða varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna frá 1951 og fer að jafnaði fram á tveggja ára fresti. Þórdís Kolbrún utanríkisráðherra segir æfinguna senda skýr skilaboð um fælingu og vera mikilvæga í ljósi breytts veruleika. Þá þéttir æfingin og styrkir samband Íslands við Bandaríkin. » 6