Raftónlistarhátíðin Extreme Chill verður haldin í næstu viku, 2.-8. september. Er það í fimmtánda sinn sem hátíðin er haldin. Að venju koma ýmsir erlendir gestir fram í bland við íslenska tónlistarmenn. Meðal þeirra eru Alessandri Cortini, FUJI||||||||||TA og Mary Lattimore. Dagskráin fer fram víðs vegar um bæinn, t.d. í Mengi, 12 tónum, White Lotus, Gamla bíói og Bíó Paradís. Allar nánari upplýsingar um hátíðina má finna á vefnum extremechill.org.